Michael Olise er mættur í læknisskoðun hjá Bayern.
Þessi 22 ára gamli leikmaður Crystal Palace er á leið til þýska liðsins en félögin hafa náð samkomulagi. Kaupverðið er talið vera um 50 milljónir punda.
Þýska félagið hafði betur gegn Chelsea og Manchester United í baráttunni, en Olise taldi þetta rétta skrefið og telur þetta gefa sér meiri möguleika á að komast í franska landsliðið.
Olise er 22 ára gamall og uppalinn á Englandi, en vegna fjölskyldutengsla gat hann valið að spila fyrir Frakkland. Hann hefur spilað fyrir U21 árs landsliðið og var meðal annars í liðinu sem tók þátt á Evrópumótinu á síðasta ári.
???????? Michael Olise, arrived in order to undergo medical and sign five year deal as new Bayern player.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 7, 2024
Medical booked today, as expected. ????????@SkySport_Ben ??????pic.twitter.com/R8oJPwsKOd