Jordan Pickford var ein af hetjum enska landsliðsins sem komst í undanúrslit Evrópumótsins í gær en hann fékk örlitla hjálp við að verja víti Manuel Akanji.
Englendingurinn átti góðan leik í marki Englendinga og var greinilega klár í vítakeppni.
Hann var með leiðbeiningar á vatnsbrúsanum um hvert svissnesku leikmennirnir myndu skjóta.
Starfsmenn enska landsliðsins hafa skoðað vel og vandlega vítaskyttur Sviss og voru þeir sammála um að Manuel Akanji myndi skjóta í vinstra hornið, sem hann gerði.
„Dýfðu þér til vinstri,“ stóð á vatnsbrúsanum og fór Pickford eftir því og varði vítið.
???????? Pickford’s water bottle for the shootout… ‘Akanji, dive left’. pic.twitter.com/Kp7zOH2cb6
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 6, 2024
Athugasemdir