Pascal Gross leikmaður Brighton er að öllum líkindum á leið til Dortmund en frá þessu greinir Florian Plettenberg hjá Sky Sports í Þýskalandi.
Hann segir frá því að Gross sem er 33 ára gamall Þjóðverji, hafi náð munnlegu samkomulagi við þýska félagið.
Félögin eru nú í viðræðum en Dortmund vill klára þær sem fyrst.
Plettenberg telur að verðmiðinn á Gross sé 8-10 milljónir evra.
Gross gekk til liðs við Brighton árið 2017 frá Ingolstadt. Hann hefur leikið 261 leiki fyrir enska félagið og skorað 32 mörk.
Athugasemdir