Fylkismenn heimsóttu Valsmenn í lokaleik dagsins þegar 13.umferð Bestu deildarinnar hóf göngu sína í dag.
Fylkir vonaðist til þess að ná að bæta við ófarir Valsmanna síðustu vikuna en það tókst ekki í dag.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 0 Fylkir
„Vonbrigði með sérstakelga seinni hálfleikinn. Mér fannst við fínir í fyrri og spiluðum mjög vel vörnina og bjuggum til hættuleg færi en svo brotnum við bara niður eftir mark númer tvö fannst mér." Sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfi Fylkis eftir leikinn í dag.
„Mér fannst við bara andlausir eftir annað markið og bara algjörlega úr takt þannig ég er mjög óánægður með seinni hálfleikinn."
Eftir flottan fyrri hálfleik var allt annað að sjá til Fylkisliðsins í þeim síðari.
„Annað markið er bara þannig að við fórum út í seinni hálfleik til þess að vera bara að halda áfram að gera það sem við vorum að gera og vera þolinmóðir og bíða eftir markinu en svo fáum við bara mark í andlitið þarna annað markið og svo fáum við mark upp úr horni og síðan tapar Ragnar boltanum hérna á miðjunni og bara einir í gegn. Þetta eru bara algjör óþarfa mörk finnst mér og óþarfi að gefa svona sterku liði eins og Val svona mörk."
Nánar er rætt við Rúnar Pál Sigmundsson þjálfara Fylkis í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 22 | 15 | 4 | 3 | 56 - 23 | +33 | 49 |
2. Breiðablik | 22 | 15 | 4 | 3 | 53 - 28 | +25 | 49 |
3. Valur | 22 | 11 | 5 | 6 | 53 - 33 | +20 | 38 |
4. ÍA | 22 | 10 | 4 | 8 | 41 - 31 | +10 | 34 |
5. Stjarnan | 22 | 10 | 4 | 8 | 40 - 35 | +5 | 34 |
6. FH | 22 | 9 | 6 | 7 | 39 - 38 | +1 | 33 |
7. Fram | 22 | 7 | 6 | 9 | 31 - 32 | -1 | 27 |
8. KA | 22 | 7 | 6 | 9 | 32 - 38 | -6 | 27 |
9. KR | 22 | 5 | 6 | 11 | 35 - 46 | -11 | 21 |
10. HK | 22 | 6 | 2 | 14 | 26 - 56 | -30 | 20 |
11. Vestri | 22 | 4 | 6 | 12 | 22 - 43 | -21 | 18 |
12. Fylkir | 22 | 4 | 5 | 13 | 26 - 51 | -25 | 17 |