Arsenal hefur áhuga á því að fá Dan Bentley, varamarkvörð Wolves, til félagsins í sumarglugganum en þetta segir hinn afar áreiðanlegi David Ornstein á Athletic.
Bentley, sem er þrítugur, spilaði aðeins fimm deildarleiki með Wolves á síðustu leiktíð.
Arsenal er að leita að markverði til að vera David Raya til halds og trauts, en Aaron Ramsdale mun að öllum líkindum yfirgefa félagið á næstu vikum.
Ornstein segir að Arsenal hafi sett sig í samband við Wolves vegna Bentley.
Wolves er þó ekki talið hafa áhuga á því að selja enska markvörðinn nema það fái sanngjarnt verð svo það geti fjármagnað kaup á öðrum markverði.
Bentley er uppalinn hjá Arsenal en yfirgaf félagið þegar hann var 15 ára gamall. Hann fór þaðan til Southend United, en hann hefur einnig spilað fyrir Bristol City og Brentford.
Athugasemdir