Endurkoma á Trafford? - Liverpool vill Eze - Pogba til Bandaríkjanna - Duran til Madríd?
banner
   sun 07. júlí 2024 22:03
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Augnablik skoraði sex - 14 ára á skotskónum
Augnablik vann sterkan sigur
Augnablik vann sterkan sigur
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Augnablik vann magnaðan 6-3 sigur á Sindra í 2. deild kvenna í dag á meðan Vestri gerði 2-2 jafntefli við Fjölni.

Melkorka Kristín Jónsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel skoruðu báðar tvö mörk fyrir Augnablik í leiknum en þær Lilja Þórdís Guðjónsdóttir og Viktoría Fjóla Sigurjónsdóttir komust einnig á blað.

Það vakti athygli að Íris Ösp Gunnarsdóttir, 14 ára leikmaður Sindra, skoraði fyrir liðið í dag.

Vestri og Fjölnir gerðu þá 2-2 jafntefli á Ísafirði. Emilía Lind Atladóttir kom Fjölni í forystu en Olivia McKnight skoraði tvö fyrir Vestra sitt hvoru megin við hálfleikinn áður en Aníta Björg Sölvadóttir jafnaði fyrir Fjölni þegar hálftími var eftir.

Fjölnir er í 7. sæti með 13 stig, Augnablik í 8. sæti með 12 stig, Sindri með 7 stig í 9. sæti og síðan kemur Vestri í 11. sæti með aðeins 2 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Sindri 3 - 6 Augnablik
1-0 Íris Ösp Gunnarsdóttir ('11 )
1-1 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('19 )
1-2 Melkorka Kristín Jónsdóttir ('55 )
2-2 Fanney Rut Guðmundsdóttir ('61 )
2-3 Líf Joostdóttir van Bemmel ('62 )
2-4 Melkorka Kristín Jónsdóttir ('63 )
2-5 Líf Joostdóttir van Bemmel ('67 )
3-5 Kiara Kilbey ('83 )
3-6 Viktoría Fjóla Sigurjónsdóttir ('86 )

Vestri 2 - 2 Fjölnir
0-1 Emilía Lind Atladóttir ('25 )
1-1 Olivia Rose McKnight ('42 )
2-1 Olivia Rose McKnight ('46 )
2-2 Aníta Björg Sölvadóttir ('61 )
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 12 10 1 1 58 - 18 +40 31
2.    Völsungur 12 9 2 1 44 - 7 +37 29
3.    KR 12 9 2 1 48 - 12 +36 29
4.    Einherji 12 7 2 3 30 - 18 +12 23
5.    ÍH 12 7 1 4 50 - 23 +27 22
6.    Fjölnir 12 6 2 4 35 - 17 +18 20
7.    KH 12 5 1 6 19 - 34 -15 16
8.    Augnablik 12 5 0 7 26 - 37 -11 15
9.    Sindri 12 3 2 7 27 - 57 -30 11
10.    Dalvík/Reynir 12 2 3 7 15 - 45 -30 9
11.    Álftanes 12 2 2 8 25 - 37 -12 8
12.    Vestri 12 2 2 8 11 - 40 -29 8
13.    Smári 12 0 2 10 7 - 50 -43 2
Athugasemdir
banner
banner