Fimm leikir fóru fram í 2. deild karla í dag. Þróttur Vogum unnu 5-0 stórsigur á Völsungi á meðan Höttur/Huginn og KFA unnu þægilega sigra.
Haukur Darri Pálsson skoraði tvívegis í 5-0 sigri Þróttara á Völsungi. Heimamenn gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik með fjórum mörkum. Haukur Darri gerði bæði mörk sín í fyrri hálfleiknum og þá skoruðu þeir Haukur Leifur Eiríksson og Guðni Sigþórsson einnig.
Eiður Baldvin Baldvinsson gerði fimmta markið þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka.
KFA vann Kormák/Hvöt 3-0. Eiður Orri Ragnarsson skoraði tvö og Matheus Gotler eitt. Höttur/Huginn vann Reyni Sandgerði með sömu markatölu, en þeir Martim Cardoso, Sæbjörn Guðlaugsson og Víðir Freyr Ívarsson gerðu mörk gestanna í leiknum.
Ingvar Freyr Þorsteinsson skoraði þrennu fyrir Víking Ólafsvík sem vann Ægi, 3-1, og þá vann KF annan leik sinn í sumar er það lagði Hauka að velli, 2-0, á Ólafsfirði. Vitor Thomas og Fransisco Lemaur gerðu mörkin í fyrri hálfleik.
Staða efstu liða í deildinni er þannig; Selfoss er á toppnum með 25 stig, Víkingur Ó í öðru með 23 stig, KFA í þriðja með 22 stig, Þróttur með 19 stig í fjórða sætinu og Völsungur í fimmta með 16 stig.
Úrslit og markaskorarar:
KFA 3 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Matheus Bettio Gotler ('15 )
2-0 Eiður Orri Ragnarsson ('29 )
3-0 Eiður Orri Ragnarsson ('45 )
Reynir S. 0 - 3 Höttur/Huginn
0-1 Martim Fortuna Soares Sequeira Cardoso ('45 )
0-2 Sæbjörn Guðlaugsson ('84 )
0-3 Víðir Freyr Ívarsson ('87 )
Þróttur V. 5 - 0 Völsungur
1-0 Haukur Darri Pálsson ('3 )
2-0 Haukur Leifur Eiríksson ('9 )
3-0 Haukur Darri Pálsson ('20 )
4-0 Guðni Sigþórsson ('44 )
5-0 Eiður Baldvin Baldvinsson ('70 )
Víkingur Ó. 3 - 1 Ægir
1-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('15 )
2-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('68 )
3-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('77 )
3-1 Toma Ivov Ouchagelov ('86 )
KF 2 - 0 Haukar
1-0 Vitor Vieira Thomas ('20 )
2-0 Fransisco Eduardo Cruz Lemaur ('45 )
2. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Selfoss | 22 | 16 | 3 | 3 | 51 - 27 | +24 | 51 |
2. Völsungur | 22 | 13 | 4 | 5 | 50 - 29 | +21 | 43 |
3. Þróttur V. | 22 | 13 | 3 | 6 | 58 - 33 | +25 | 42 |
4. Víkingur Ó. | 22 | 12 | 6 | 4 | 50 - 30 | +20 | 42 |
5. KFA | 22 | 11 | 2 | 9 | 52 - 46 | +6 | 35 |
6. Haukar | 22 | 9 | 3 | 10 | 40 - 42 | -2 | 30 |
7. Höttur/Huginn | 22 | 9 | 3 | 10 | 41 - 50 | -9 | 30 |
8. Ægir | 22 | 6 | 7 | 9 | 29 - 35 | -6 | 25 |
9. KFG | 22 | 6 | 5 | 11 | 38 - 43 | -5 | 23 |
10. Kormákur/Hvöt | 22 | 5 | 4 | 13 | 19 - 42 | -23 | 19 |
11. KF | 22 | 5 | 3 | 14 | 26 - 50 | -24 | 18 |
12. Reynir S. | 22 | 4 | 3 | 15 | 28 - 55 | -27 | 15 |
Athugasemdir