UEFA hefur tilkynnt hvaða dómarar munu dæma undanúrslitaleikina á EM í Þýskalandi.
Slóvenski dómarinn Slavko Vincic mun dæma leik Spánar og Frakklands í München annað kvöld.
Þýski dómarinn Felix Zwayer dæmir svo leik Englands gegn Hollandi á miðvikudaginn.
Slóvenski dómarinn Slavko Vincic mun dæma leik Spánar og Frakklands í München annað kvöld.
Þýski dómarinn Felix Zwayer dæmir svo leik Englands gegn Hollandi á miðvikudaginn.
BBC segir að ensku dómararnir Anthony Taylor og Michael Oliver séu farnir heim en þeir dæmdu báðir í 8-liða úrslitum en dæma ekki meira á mótinu. Þeir geta að sjálfsögðu ekki starfað á leikjum Englands.
Spennandi verður að sjá hvaða dómari mun dæma úrslitaleikinn á sunnudag. Ítalski dómarinn Daniele Orsato og pólski dómarinn Szymon Marciniak eru þar taldir líklegastir.
Athugasemdir