Riccardo Calafiori er einn mest spennandi miðvörður Evrópuboltans en þessi 22 ára gamli Ítali er líklega á leið til Arsenal.
Fabrizio Romano greinir frá því að Arsenal sé á lokametrunum í viðræðum við Bologna um kaup á leikmanninum og vonast til að hann verði orðinn leikmaður Lundúnaliðsins á næstu dögum.
Félagið hefur engar áhyggjur af viðræðunum við leikmanninn sjálfan þar sem hann er sagður hafa samþykkt fimm ára samning við félagið.
Calafiori lék alla leiki ítalska liðsins í riðlakeppninni á EM í Þýskalandi en var í banni þegar liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum gegn Sviss.
Hann lék 30 leiki í Seriu A með Bologna á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni.
Athugasemdir