Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha kláraði læknisskoðun hjá þýska félaginu Bayern München í dag.
Bayern og Fulham komust loksins að samkomulagi eftir langar viðræður en þýska félagið greiðir 47,4 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmanninn.
Palhinha, sem er 28 ára gamall, var búinn að ná samningum við Bayern um kaup og kjör, en hann kláraði læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Hann gerir fjögurra ára samning við Bayern en gengið verður frá smáatriðunum á næsta sólarhringum áður en hann verður kynntur hjá félaginu.
Bayern mun einnig kynna Michael Olise á næstu dögum en hann fór einnig í læknisskoðun í dag. Hann er að koma frá enska félaginu Crystal Palace.
Athugasemdir