Nacho Gil hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Vestra en hann er að fara frá félaginu. Þetta staðfesti Davíð Smári Lamude þjálfari liðsins í viðtali við mbl.is eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Breiðabliki í gær.
Lestu um leikinn: Vestri 2 - 2 Breiðablik
Nacho er á leið til Selfoss á láni út tímabilið en samningur hans við Vestra er að renena út.
„Við óskum honum góðs gengis, hann er gríðarlega sterkur leikmaður fyrir Vestra og er búinn að eiga góða tíma hér og taka þátt í uppgangi félagsins. Það er ánægjulegt að hann sé kominn í nýtt verkefni," sagði Davíð Smári.
Þá er Marvin Darri Steinarsson varamarkvörður liðsins á leið út í skóla en Sveinn Sigurður Jóhannesson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir félagsins. Johannes Selvin yfirgefur einnig félagið.
„Marvin er að fara í skóla og verður ekki búsettur hér. Þannig að við þurfum að skoða það vel. Síðan er Johannes Selvin líka búinn að spila sinn síðasta leik fyrir okkur en hann er að fara aftur til OB eftir lán. Já það eru einhverjar breytingar á hópnum og við munum reyna að fylla upp í með góðum leikmönnum,“ sagði Davíð Smári.