Sædís Rún Heiðarsdóttir var í byrjunarliði Valerenga í dag þegar liðið valtaði yfir Stabæk 6-2.
Þetta var í fyrsta sinn sem Sædis er í byrjunarliðinu eftir að hún meiddist í apríl. Hún gerði sér lítið fyrir og lagði upp tvö mörk í fyrri hálfleik en liðið var með 2-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks.
Hún var tekin af velli eftir rúmlega klukkutíma leik en þá var staðan orðin 5-0. Liðið bætti við sjötta markinu áður en Stabæk klóraði í bakkann með tveimur mörkum.
Valerenga er á toppi deildarinnar með 42 stig eftir 16 umferðir.
Athugasemdir