Það er að færast meiri spenna í leik Englands og Sviss í 8-liða úrslitum Evrópumótsins en tvö mörk voru skoruð á fimm mínútum á lokakafla leiksins.
Eftir mikinn spennu leik var það Breel Embolo sem skoraði allt of einfalt mark fyrir Sviss á 75. mínútu.
Boltanum var spilað hægra megin í teiginn og þaðan fyrir markið en Embolo var réttur maður á réttum stað til að koma boltanum í netið.
Englendingar settu í næsta gír og aðeins fimm mínútum síðar kom jöfnunarmarkið. Boltinn var færður yfir hægra megin á Saka, sem keyrði með boltann við vítateigslínuna og setti þéttingsfast skot í fjærhornið.
Frábær afgreiðsla hjá Arsenal-manninum og staðan aftur jöfn.
Það lá ekki beint mark í loftinu en það tekur svo sem enga stund að skora þau. Breel Embolo kom Sviss yfir gegn Englandi, 1-0 á 74. mínútu?? pic.twitter.com/zX1uvROT0E
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 6, 2024
Sjáðu markið hjá Saka
Athugasemdir