Endurkoma á Trafford? - Liverpool vill Eze - Pogba til Bandaríkjanna - Duran til Madríd?
banner
   sun 07. júlí 2024 11:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Suarez svarar Andreas Pereira fullum hálsi - „Sýndu virðingu"
Mynd: Getty Images

Luis Suarez framherji landsliðs Úrúgvæ svaraði brasilíska landsliðsmanninum Andreas Pereira fullum hálsi eftir sigur Úrgúvæ á Brasilíu í átta liða úrslitum Copa America í nótt.


„Landslið Úrúgvæ er mjög gott en ef þú skoðar nöfnin erum við með lið sem þeir dreyma um," sagði Pereira.

„Þú verður að sýna meiri virðingu þegar þú talar um Úrúgvæ, kynntu þér sögu Úrúgvæ," svaraði Suarez.

En hann skaut á Pereira sem var á láni hjá brasilíska liðinu Flamengo tímabilið 2021-2022, frá Man Utd, og var í samkeppni við Úrúgvæan Giorgian De Arrascaeta.

„Áður en ég segi hvaða leikmenn vilja vera í brasilíska landsliðinu verð ég að nefna það að maðurinn sem sagði þetta var varamaður fyrir De Arrascaeta sem er besti leikmaður brasilísku deildarinnar," sagði Suarez.


Athugasemdir
banner
banner