Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði Orlando City í nótt þegar liðið vann annan leik sinn í röð.
Liðið tók á móti DC United en Dagur lagði upp fyrsta markið á Martin Ojeda. Dagur gerði hrikalega vel þegar hann hristi af sér varnarmann DC United og sendi boltan út í teiginn á Ojeda sem skoraði með föstu skoti.
Staðan var 3-0 í hálfleik og Orlando bætti tveimur mörkum við í þeim síðari. 5-0 sigur staðreynd.
Orlando er í 7. sæti deildarinnar með 27 stig eftir 22 umferðir.
Athugasemdir