Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
   fös 05. júlí 2024 12:30
Elvar Geir Magnússon
Vilhjálmur prins mætir á völlinn
Vilhjálmur prins er stuðningsmaður Aston Villa.
Vilhjálmur prins er stuðningsmaður Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Vilhjálmur Bretaprins verður í heiðursstúkunni á morgun þegar England mætir Sviss í 8-liða úrslitum EM. Kensington-höll staðfesti þetta við fjölmiðla í morgun.

Vilhjálmur, prinsinn af Wales, er mikill fótboltaáhugamaður og heldur með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Hann er forseti enska fótboltasambandsins.

Þetta verður ekki fyrsti leikurinn sem hann mætir á þetta Evrópumótið því hann var viðstaddur markalausan leik Englands gegn Danmörku í Frankfurt.

Leikur Englands og Sviss á morgun fer fram í Dusseldorf og hefst klukkan 16.
Athugasemdir
banner
banner
banner