Man Utd á eftir De Ligt - Greenwood eftirsóttur - Olise nálgast Chelsea - Mourinho vill fá Lindelöf
   fös 24. maí 2024 12:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Paqueta í tíu ára bann? - Sjáðu spjöldin sem um ræðir
Lucas Paqueta.
Lucas Paqueta.
Mynd: Getty Images
Lucas Paqueta, miðjumaður West Ham, var í gær ákærður af enska fótboltsambandinu fyrir brot á veðmálareglum. Hann er sakaður um að hafa fengið viljandi áminningar til að hafa áhrif á veðmál.

Um er að ræða úrvalsdeildarleik gegn Leicester sem fram fór þann 12. nóvember 2022 og þrjá leiki sem voru 2023. Leikir gegn Aston Villa, Leeds og Bournemouth.

Þessi 26 ára brasilíski landsliðsmaður hefur verið undir rannsókn síðan síðasta sumar.

Hann sjálfur neitar sök og sagðist í yfirlýsingu undrandi á að vera ákærður. En Daily Mail segir að ef hann er sekur, þá eigi hann mögulega yfir höfði sér tíu ára bann frá fótbolta.

Paqueta er mögulega að fara í langt bann frá fótbolta en hér fyrir neðan má sjá spjöldin sem þóttu grunsamleg að mati ensku úrvalsdeildarinnar. Hægt er að skoða myndböndin með því að ýta á 'play-takkann' á þeim.


Athugasemdir
banner
banner