Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
banner
   mán 29. júlí 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Osimhen ekki í hóp hjá Napoli
Mynd: Getty Images
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen var ekki í leikmannahópi Napoli er það mætti albanska liðinu Egnatia í vináttuleik í gær.

Osimhen vill fara frá Napoli og hefur þegar tjáð stjórnarmönnum félagsins um ákvörðun sína.

Hann var því ekki í hópnum er Napoli vann þægilegan 4-0 sigur á Egnatia.

Napoli og PSG hafa átt í viðræðum um Osimhen síðustu vikur, en þær viðræður eru í biðstöðu sem stendur. Napoli vill rúmlega 100 milljónir evra fyrir framherjann en PSG er ekki nálægt þeirri upphæð í augnablikinu.

Ef Osimhen fer frá Napoli ætlar félagið að sækja Romelu Lukaku frá Chelsea.

Samkvæmt ensku miðlunum vill Chelsea fá að minnsta kosti 29,5 milljónir punda fyrir belgíska sóknarmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner