Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
banner
   þri 30. júlí 2024 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola svarar ummælum Alvarez: Okei, hugsaðu málið
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Pep Guardiola hefur svarað ummælum sem sóknarmaðurinn Julian Alvarez létt falla í viðtali við argentínska fjölmiðla í gær, en Argentínumaðurinn greindi frá því að hann væri að íhuga framtíð sína hjá félaginu.

Alvarez hefur spilað 103 leiki á tveimur tímabilum sínum með Man City en er ósáttur við að hafa spilað lítið í stóru leikjunum.

Atlético, Barcelona og PSG eru bæði áhugasöm um Alvarez sem gæti ákveðið að yfirgefa Man City fyrir gluggalok.

„Ég las að hann ætlaði að hugsa sig um. Okei, hugsaðu málið, en svo mun hann tjá okkur hvað hann vilji gera. Julian spilaði mikið. Vill hann spila meira? Það er í góðu lagi. Hann mun hugsa málið og ræða svo við okkur,“ sagði Guardiola.

Samkvæmt Athletic mun Man City ekki sætta sig við tilboð undir 60 milljónum punda.

Alvarez kom til Man CIty frá River Plate fyrir tveimur árum fyrir aðeins 14 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner