Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 02. september 2021 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Aron Sigurðar fór á kostum - Skoraði fjögur í bikarnum
Aron Sigurðarson var á eldi í dag
Aron Sigurðarson var á eldi í dag
Mynd: Horsens
Fjölnismaðurinn Aron Sigurðarson er ekki lengi að stimpla sig inn í danska B-deildarfélagið Horsens en hann gerði fjögur mörk í 8-0 sigri í bikarnum í dag.

Aron kom til Horsens frá belgíska úrvalsdeildarfélaginu Union Saint Gilloise á dögunum og hefur þegar spilað þrjá leiki í dönsku B-deildinni en ekki tekist að skora.

Hann var ónotaður varamaður gegn Lyngby á dögunum en nýtti heldur betur tækifærið í dag og skoraði fjögur mörk.

Aron var mikil ógn í sóknarleik Horsens. Hann skoraði fyrstu tvö mörkin í fyrri hálfleik og bætti við tveimur til viðbótar í þeim síðari.

Horsens er komið áfram í 32-liða úrslit bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner