Joshua Zirkzee, VIctor Osimhen, Riccardo Calafiori, Conor Gallagher, Florian Wirtz og fleiri koma við sögu
   fim 04. júlí 2024 22:32
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: KR burstaði KH
KR-ingar hafa ekki tapað leik í deildinni
KR-ingar hafa ekki tapað leik í deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KR 6 - 0 KH
1-0 Alice Elizabeth Walker ('3 )
2-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir ('18 )
3-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir ('35 )
4-0 Makayla Soll ('53 )
5-0 Makayla Soll ('61 )
6-0 Katla Guðmundsdóttir ('88 )

KR er áfram taplaust í 2. deild kvenna eftir að það burstaði KH, 6-0, í Frostaskjóli í kvöld.

Heimakonur voru með þriggja marka forystu í hálfleik. Alice Elizabeth Walker skoraði fyrsta markið á 3. mínútu og þá gerði Birta Ósk Sigurjónsdóttir tvö áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Makayla Soll gerði tvö mörk á átta mínútum snemma í síðari hálfleiknum áður en Katla Guðmundsdóttir rak síðasta naglann í kistu KH.

KR er í 3. sæti með 20 stig og áfram taplaust í deildinni á meðan KH er með 16 stig í 5. sæti.
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 9 8 1 0 47 - 12 +35 25
2.    Völsungur 9 7 1 1 35 - 5 +30 22
3.    KR 8 6 2 0 31 - 6 +25 20
4.    Einherji 9 6 1 2 24 - 12 +12 19
5.    ÍH 9 5 1 3 41 - 21 +20 16
6.    KH 9 5 1 3 16 - 17 -1 16
7.    Fjölnir 7 4 0 3 24 - 12 +12 12
8.    Augnablik 7 3 0 4 17 - 18 -1 9
9.    Sindri 8 2 1 5 13 - 42 -29 7
10.    Álftanes 8 1 1 6 15 - 28 -13 4
11.    Dalvík/Reynir 7 0 1 6 8 - 37 -29 1
12.    Vestri 8 0 1 7 4 - 34 -30 1
13.    Smári 8 0 1 7 5 - 36 -31 1
Athugasemdir
banner
banner