Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
   fös 05. júlí 2024 18:56
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu öll mörkin úr mögnuðum sigri Spánverja í Stuttgart
Spánverjar eru komnir áfram í undanúrslit
Spánverjar eru komnir áfram í undanúrslit
Mynd: EPA
Spánn 2 - 1 Þýskaland
1-0 Dani Olmo ('51 )
1-1 Florian Wirtz ('89 )
2-1 Mikel Merino ('119 )
Rautt spjald: Daniel Carvajal, Spánn ('120)

Spánn vann Þýskaland, 2-1, í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Stuttgart í dag.

Dani Olmo kom Spánverjum í forystu á 51. mínútu eftir frábæra sendingu Lamine Yamal. Enginn var að elta Olmo sem setti boltann í vinstra hornið.

Florian Wirtz jafnaði metin undir lok venjulegs leiktíma er Joshua Kimmich skallaði boltann í jörðina og til Wirtz sem setti boltann í stöng og inn.

Seint í framlengingunni gerði Mikel Merino sigurmarkið með skalla eftir fyrirgjöf Dani Olmo. Öll mörkin má sjá hér fyrir neðan.






Athugasemdir
banner
banner
banner