Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
   fös 05. júlí 2024 17:59
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Frakklands og Portúgals: Mbappe og Ronaldo byrja
Mynd: Getty Images
Frakklands og Portúgal mætast í 8-liða úrslitum Evrópumótsins klukkan 19:00 í kvöld en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Fyrirliðarnir Cristiano Ronaldo og Kylian Mbappe byrja báðir í stórleiknum.

Roberto Martínez, þjálfari Portúgals, er með óbreytt lið frá sigrinum á Slóveníu í 16-liða úrslitum.

Alls eru tvær breytingar á liði Frakka frá 1-0 sigrinum á Belgíu. Eduardo Camavinga og Randal Kolo Muani koma inn fyrir Adrien Rabiot og Marcus Thuram.

Frakkland: Maignan; Koundé, Upamecano, Saliba, Theo; Camavinga, Tchouaméni, Kanté; Griezmann, Kolo Muani, Mbappé.

Portúgal: Diogo Costa, Cancelo, Rúben Dias, Pepe, Mendes, Palhinha, Vitinha, Bruno Fernandes, Bernardo Silva, Leão, Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner