Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
   fös 05. júlí 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Dybala reynir að fá Chiesa til Roma
Mynd: EPA
Roma hefur fundað með umboðsmanni Federico Chiesa og býr sig undir að gera Juventus tilboð í ítalska landsliðsmanninn.

Juventus er tilbúið að selja Chiesa eftir að hafa mistekist að gera nýjan samning við hann. Samningur hans rennur út á næsta ári.

Ítalskir fjölmiðlar segja verðmiða hans hafa lækkað í 25-30 milljónir evra.

Paulo Dybala leikmaður Roma er að aðstoða félagið og reyna að fá Chiesa til að verða samherji sinn. Það ku hafa tekist vel og Chiesa hefur áhuga á að ganga í raðir félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner