Antoine Griezmann, leikmaður franska landsliðsins, naut samverunnar með fjölskyldu sinni eftir sigur Frakklands á Portúgal í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í kvöld.
Þessi lykilmaður Atlético Madríd spilaði framarlega á miðsvæðinu hjá Frökkum í kvöld og kom vel frá sínu.
Leikurinn var stál í stál þar sem bæði lið fengu góð færi til að skora, en þurftu að sætta sig við markalausan leik og vítakeppni. Þar höfðu Frakkar betur, 5-3, og eru því komnir áfram í undanúrslit.
Eftir leikinn hitti Griezmann eiginkonu sína og tvö börn í stúkunni, en hann kom færandi hendi. Frakkinn var með tvær pizzur og gæddi sér á þeim ásamt fjölskyldu sinni í stúkunni.
Falleg stund á Volkarpkstadion í Hamburg en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Antoine Griezmann delivers pizza ????
— World Soccer Talk (@worldsoccertalk) July 5, 2024
What better way to celebrate France's win by sharing pizza with your family? #lesbleus ????????pic.twitter.com/48wO8VEiQI
Athugasemdir