Ýmir, topplið 4. deildar karla, tapaði öðrum leik sínum í röð er það laut í lægra haldi fyrir KH, 2-1, á Hlíðarenda í kvöld.
Kópavogsliðið hafði byrjað tímabilið af krafti. Í fyrstu átta leikjum deildarinnar vann liðið sjö og gerði eitt jafntefli, en hefur nú tapað síðustu tveimur.
Kristinn Kári Sigurðarson og Friðrik Óskar Reynisson skoruðu tvö á sextán mínútum í síðari hálfleik áður en Steingrímur Dagur Stefánsson klóraði í bakkann fyrir gestina í Ými.
Þrátt fyrir tapið er Ýmir enn á toppnum með 22 stig en KH nú í 3. sæti með 16 stig.
KFS og Árborg gerðu 2-2 jafntefli í Vestmannaeyjum og þá tapaði Hamar óvænt fyrir RB, 1-0. Hamar ekki að ná að nýta tækifærið að taka toppsætið.
Kría kom til baka gegn KÁ í 2-2 jafntefli. Seltirningar lentu tveimur mörkum undir en svöruðu fyrir sig og náðu í stig. Stöðutöflu deildarinnar má sjá neðst í fréttinni.
Úrslit og markaskorarar:
KFS 2 - 2 Árborg
0-1 Sigurður Óli Guðjónsson ('18 )
1-1 Óskar Elías Zoega Óskarsson ('54 )
2-1 Óskar Elías Zoega Óskarsson ('65 )
2-2 Hallgrímur Þórðarson ('87 , Sjálfsmark)
Hamar 0 - 1 RB
0-1 Dusan Lukic ('82 )
KÁ 2 - 2 Kría
1-0 Egill Örn Atlason ('20 )
2-0 Stefán Alex Ríkarðsson ('55 )
2-1 Axel Fannar Sveinsson ('56 )
2-2 Birkir Rafnsson ('77 , Mark úr víti)
KH 2 - 1 Ýmir
1-0 Kristinn Kári Sigurðarson ('57 )
2-0 Friðrik Óskar Reynisson ('73 )
2-1 Steingrímur Dagur Stefánsson ('77 )
4. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Tindastóll | 18 | 13 | 4 | 1 | 48 - 14 | +34 | 43 |
2. Ýmir | 18 | 11 | 4 | 3 | 50 - 29 | +21 | 37 |
3. Árborg | 18 | 10 | 5 | 3 | 46 - 28 | +18 | 35 |
4. Hamar | 18 | 9 | 3 | 6 | 45 - 41 | +4 | 30 |
5. KÁ | 18 | 5 | 7 | 6 | 41 - 39 | +2 | 22 |
6. KH | 18 | 7 | 1 | 10 | 50 - 52 | -2 | 22 |
7. Kría | 18 | 6 | 3 | 9 | 38 - 60 | -22 | 21 |
8. KFS | 18 | 5 | 2 | 11 | 45 - 46 | -1 | 17 |
9. Skallagrímur | 18 | 5 | 2 | 11 | 34 - 40 | -6 | 17 |
10. RB | 18 | 2 | 3 | 13 | 26 - 74 | -48 | 9 |
Athugasemdir