Gíneumaðurinn Serhou Guirassy mun ganga í raðir Borussia Dortmund í sumar en þetta segir Florian Plettenberg á Sky í Þýskalandi.
Guirassy átti sitt besta tímabil á ferlinum á síðustu leiktíð er hann skoraði 28 deildarmörk í 28 leikjum með Stuttgart.
Það var ekki nóg til að taka markakóngstitilinn í Þýskalandi þar sem Harry Kane skoraði 36 mörk fyrir Bayern München.
Eðlilega hefur Guirassy verið eftirsóttur en hann hefur ákveðið næsta áfangastað.
Samkvæmt Plettenberg er Borussia Dortmund að ganga frá samningum við hann og Stuttgart.
Ef allt gengur að óskum verður hann kynntur hjá félaginu á næstu tveimur sólarhringum.
Athugasemdir