Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
banner
   fös 05. júlí 2024 14:00
Elvar Geir Magnússon
Vertonghen leggur landsliðsskóna á hilluna
Jan Vertonghen.
Jan Vertonghen.
Mynd: EPA
Belgíski varnarmaðurinn Jan Vertonghen hefur ákveðið að hætta að leika með landsliðinu.

Þessi 37 ára fyrrum varnarmaður Tottenham lék 157 landsleiki fyrir Belgíu, þann fyrsta í júní 2007 gegn Portúgal.

Hann var í belgíska hópnum sem tók bronsverðlaun á HM 2018.

„Takk fyrir allar minningarnar, ég upplifði drauminn," skrifaði Vertonghen á Instagram.

Hann spilar í dag fyrir Anderlecht í heimalandinu en hann hefur á ferli sínum einnig leikið fyrir Benfica og Ajax.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner