Það er líklega enginn leikmaður sem hefur verið meira spennandi á Evrópumótinu en Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao.
Hann ku vera fáanlegur á 58 milljónir punda vegna riftunarákvæðis í samningi hans. Ensk úrvalsdeildarfélög hafa mikinn áhuga á honum og einnig Barcelona.
Arsenal, Chelsea og Liverpool hafa öll sýnt honum áhuga og einnig franska stórliðið PSG en spænska blaðið Sport segir að leikmaðurinn vilji ekki yfirgefa spænska boltann á þessum tímapunkti.

Hans helsti draumur er að ganga í raðir Barcelona og hann er meðvitaður um að það sé tækifæri sem gæti ekki boðist aftur.
Þá hefur þessi 21 árs leikmaður ítrekað sagst vera ánægður í Bilbao en liðið verður í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir