Joshua Zirkzee, VIctor Osimhen, Riccardo Calafiori, Conor Gallagher, Florian Wirtz og fleiri koma við sögu
   fös 05. júlí 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe: Heiður að mæta Ronaldo
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe, stjarna Frakklands, mun mæta átrúnaðargoði sínu, Cristiano Ronaldo, í síðasta sinn á Evrópumóti er Frakkland og Portúgal mætast í 8-liða úrslitum í kvöld.

Það er ekkert leyndarmál að Mbappe elskar Ronaldo og allt það sem hann hefur gert fyrir fótboltann.

Frakkinn var með plaköt af Portúgalanum um allt herbergi á yngri árum sínum, en í dag eru þeir að mætast á stærsta sviðinu.

„Það er þessi aðdáun sem ég hef alltaf haft fyrir leikmanninum Ronaldo. Ég hef fengið tækifæri til að kynnast honum á síðustu árum og talað mörgum sinnum við hann. Við erum enn í sambandi.“

„Hann er alltaf að reyna gefa mér ráð og vill alltaf vita hvað er í gangi í mínu lífi. Að spila gegn honum er alger heiður og bara fyrir allt sem hann hefur gert í fótboltanum.“

„Hvað sem gerðist fyrir eða mun gerast eftir það, þá verður hann alltaf goðsögn leiksins. Auðvitað vonumst við samt eftir því að vinna og komast í undanúrslit,“
sagði Mbappe um Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner