Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
banner
   þri 30. júlí 2024 09:30
Elvar Geir Magnússon
Calafiori var tilbúinn að pakka niður eftir fyrsta samtal við Arsenal
Calafiori er kominn til Arsenal.
Calafiori er kominn til Arsenal.
Mynd: Getty Images
Arteta og Calafiori.
Arteta og Calafiori.
Mynd: Arsenal
Mikel Arteta stjóri Arsenal segir að varnarmaðurinn Riccardo Calafiori hafi verið tilbúinn að pakka niður í töskur og ganga strax í raðir félagsins eftir fyrsta samtal.

Þessi fjölhæfi ítalski varnarmaður hefur veirð keyptur frá Bologna en upphæðin gæti náð 42 milljónum punda eftir ákvæðum. Arteta segir að það hafi verið vilji leikmannsins frá upphafi að koma til Arsenal.

„Það var frábært þegar ég ræddi við hann í upphafi, og þá vissi ég ekki hvort við gætum fengið hann. Hann var ákveðinn og sagði: 'Láttu mig vita þegar þið eruð klárir, töskurnar eru tilbúnar og ég vil bara fara til Arsenal.' - Þetta sagði hann við mig," segir Arteta.

Sjálfur segir Calafiori við fjölmiðla að hann sé sannfærður um að Arsenal sé besti staðurinn fyrir sig til að þróast og þroskast sem leikmaður.

„Það voru önnur félög að reyna að fá mig en ég hugsaði ekkert út í þau. Ég er kominn hingað og vil vinna titla með Arsenal. Þetta er ungt lið og getur náð árangri. Mitt hugarfar er á sigur," segir Calafiori.

Hann var frábær sem miðvörður með ítalska landsliðinu á EM og spilaði líka frábærlega í þeirri stöðu hjá Bologna. Hjá Arsenal er búist við því að hans aðalstaða til að byrja með verði vinstri bakvörðurinn.

„Ég get spilað nokkrar stöður og er sama hvar ég spila, ég vil bara spila," segir Calafiori.

Arsenal leikur æfingaleik í Bandaríkjunum gegn Liverpool annað kvöld en Calafiori verður væntanlega ekki með í þeim leik. Emile Smith Rowe var ekki á síðustu æfingu Arsenal en enski miðjumaðurinn er að ganga frá skiptum yfir til Fulham.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner