Hinn fimmtán ára gamli Albert Ingi Jóhannsson, leikmaður Vestra, er kominn til danska félagsins Bröndby þar sem hann er við æfingar í akademíu félagsins.
Fram kemur á heimasíðu Vestra að Albert Ingi sé fæddur 2009 og hafi verið í æfingahóp meistaraflokks karla hjá Vestra frá því í haust. Á dögunum lék hann sína fyrstu leiki með meistaraflokki Vestra, gegn FH og Stjörnunni.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir hann og mikið ævintýri. Hann æfir hjá Bröndby í þessari viku," segir Heiðar Birnir Torleifsson, yfirþjálfari Vestra, við Tipsbladet.
„Hann er miðjumaður, aðallega sexa en getur einnig spilað sem átta. Hann er vinnusamur og með mjög gott hugarfar. Hann er hefðbundinn íslenskur leikmaður með góða tækni og sterkt hugarfar. Hann er mjög efnilegur."
Athugasemdir