![Lengjudeildin](/images/leng_150x150.png)
„Þetta var ekki gott, bara alveg mjög langt frá því en svona er þetta bara." Segir Árni Freyr Guðnason, þjálfari ÍR, eftir 5-0 tap gegn Þrótti í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 - 0 ÍR
„Við vorum soft og langt frá mönnum. Lélegir einn á einn bæði sóknarlega og varnarlega og þá sérstaklega í lok fyrri og byrjun seinni. Í stöðunni 3-0 var leikurinn bara búinn."
Sæmundur Sven Alexandersson klúðraði dauðafæri í stöðunni 1-0 sem hefði getað breytt miklu.
„Þetta hefði getað breytt miklu. Ég sá ekki atvikið en þetta var víst ansi gott færi. Í 2-0 gefumst við svo bara upp."
Eins og Árni segir var eins og liðið hafi gefist upp í 2-0 sem er ekki í anda þessara ÍR gilda.
„Við höfum spilað mörgum sinnum mjög vel en það er kannski bara að betra tapa einu sinni 5-0 en fimm sinnum 1-0. Þetta var reality check."
Jordian Farahani eða Chico eins og hann er kallaður spilaði sinn fyrsta leik í rúmt ár í dag eftir erfið meiðsli.
„Hann var á leið að flytja út en við fengum hann til að vera áfram með okkur. Hann gefur okkur öðruvísi vídd en aðrir varnarmenn en Arnór Gauti er til dæmis meiddur. Gott að fá svona karakter í liðið."
Næsti leikur íR er gegn ÍBV og þar þarf að sýna nýtt andlit.
„Ég hef fulla trú á þessu. VIð þurfum að fara aðeins að fara í grunngildin og þá kemur önnur útkomu eins og í vetur og í byrjun móts en við þurfum að spýta í lófana."
Athugasemdir