„Mikil vonbrigði og eiginlega smá hissa að þetta skuli geta gerst.“ sagði Kjartan Henry Finnbogason, aðstoðarþjálfari FH, eftir 3-3 jafntefli gegn Fram í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 3 - 3 Fram
„Ég held að ég hafi ekki tekið þátt í leik þar sem ég hef komist 3-0 yfir og endað síðan ekki á því að vinna hann svo þetta voru mikil vonbrigði.“
FH voru miklu betri en Fram í fyrri hálfleik.
„Við vorum mjög flottir í fyrri hálfleik og gerðum hlutina sem við lögðum upp með. Komum síðan allt í lagi út í seinni hálfleikinn en síðan bara eftir að við skorum þetta þriðja mark hættum við að berjast og vinna seinni boltana og gera sömu hlutina og við gerðum áður en við skoruðum þriðja markið.“
Í seinni hálfleik nær Fram að minnka muninn eftir að Alex Freyr skorar og þá komast þeir inn í leikinn.
„Þetta er búið að gerast fyrr á tímabilinu að þegar við höldum að við séum betri en við erum. Við þurfum að bæta úr þessu. Skora þrjú mörk þá áttu að vinna leikinn. Þannig við erum mjög súrir og svekktir með úrslitin í kvöld.“
Næsti leikur hjá FH er eftir rúmlega þrjár vikur sökum landsleikjahlés.
„Með þessa tilfinningu að þér finnst eins og þú hafir tapað leik þá viltu spila strax aftur. Þetta er ekki tilfinningin sem við vildum fara með inn í þessa landsleikjapásu.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.