Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   lau 31. ágúst 2024 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líkleg byrjunarlið Man Utd og Liverpool - Verður bara ein breyting?
Mynd: EPA
Klukkan 15:00 á sunnudag tekur Manchester United á móti Liverpool í stórleik helgarinnar í enska boltanum.

Liverpool er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en Man Utd missteig sig gegn Brighton um síðustu helgi og er með þrjú stig.

Mason Mount verður fjarri góðu gamni og Guardian gerir ráð fyrir því að Joshua Zirkzee komi inn í lið United.

Líklegt byrjunarlið Liverpool er það sama og byrjaði gegn Brentford.

Ekki tókst að skrá Manuel Ugarte í hópinn hjá United í tæka tíð og Curtis Jones er tæpur hjá Liverpool.

Victor Lindelöf, Rasmus Höjlund, Luke Shaw, Tyrell Malacia og Leny Yoro eru ásamt Mount fjarri góðu gamni hjá United.
Athugasemdir
banner
banner