Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   lau 31. ágúst 2024 15:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu frábæra stoðsendingu Willums
Mynd: Birmingham City
Willum Þór Willumsson hefur verið mikið í boltanum á St. Andrew's þar sem Birmingham tekur á móti Wigan í ensku C-deildinni.

Willum lagði upp eina mark leiksins til þessa fyrir Alfie May með frábærri stungusendingu.

Hann kom sér einnig í frábær færi en varnarmaður Wigan kom í veg fyrir mark og þá átti hann skot sem markvörður Wigan varði.

Staðan í leiknum er 1-0 á 60. mínútu og kom Alfons Sampsted inn á í liði Birmingham á 51. mínútu.

Bæði Willum og Alfons eru í landsliðshópnum sem kemur saman á mánudag.




Athugasemdir
banner
banner
banner