„Það er í fínu lagi með mig. Umbúðirnar láta þetta líta verr út en þetta er," segir John Stones varnarmaður enska landsliðsins sem segist klár í slaginn fyrir leikinn gegn Sviss í 8-liða úrslitum EM á laugardaginn.
Stones æfði með áberandi umbúðir utan um hægra hné sitt á æfingu í gær og sumir enskir fjölmiðlamenn höfðu áhyggjur af stöðunni á miðverðinum.
Stones æfði með áberandi umbúðir utan um hægra hné sitt á æfingu í gær og sumir enskir fjölmiðlamenn höfðu áhyggjur af stöðunni á miðverðinum.
„Við erum að fara að mæta öflugu liði. Svisslendingar hafa verið frábærir. Við erum að fara að mæta mönnum eins og Manu (Manuel Akanji samherja hans hjá Manchester City) sem er framúrskarandi leikmaður. Þetta verður alvöru prófraun," segir Stones.
John Stones: “The heavy strapping looks worse than what it is. I’m all good!” ???????? pic.twitter.com/pGXgA9zAZ1
— City Report (@cityreport_) July 4, 2024
Athugasemdir