8-liða úrslit EM hefjast á morgun en OneFootball hefur valið úrvalslið 16-liða úrslita mótsins. Þetta eru leikmennirnir sem upp úr stóðu.
Markvörður: Diogo Costa (Portúgal) - Varð fyrsti markvörður í sögu Evrópumótsins til að halda hreinu í gegnum 120 mínútur og vítakeppni. Hann varði stórkostlega frá Benjamin Sesko í lok framlengingar og var svo hetjan í vítakeppninni. Þessi markvörður Porto átti magnaðan leik.
Hægri bakvörður: Joao Cancelo (Portúgal) - Sífellt hlaupandi og bjó til vandræði fyrir Slóvena þegar hann tók þátt í sóknarleiknum.
Miðvörður: Merih Demiral (Tyrkland) - Var hrikalega öflugur varnarlega og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Austurríki. Þvílík frammistaða!
Miðvörður: Pepe (Portúgal) - Ótrúleg frammistaða hjá 41 árs leikmanni. Hann rann einu sinni og það hefði getað verið dýrt en markvörðurinn hans bjargaði. Annars var hann algjörlega framúrskarandi.
Vinstri bakvörður: Ferdi Kadioglu (Tyrkland) - Lagði líf og limi í sigurinn gegn Austurríki í rigningunni í Leipzig. Þessi leikmaður Fenerbahce var frábær við erfiðar aðstæður.
Miðjumaður: Remo Freuler (Sviss) - Hann og Granit Xhaka voru magnaðir á miðju Sviss í 2-0 sigrinum gegn Ítalíu. Markið sem Freuler skoraði gerir það að verkum að hann færi sæti í liðinu en ekki Xhaka. Báðir geggjaðir.
Miðjumaður: Jude Bellingham (England) - Var alls ekki góður yfir 90 mínútur en skoraði svo stórbrotið mark í lokin sem bjargaði Englendingum. Fyrir það fær hann sæti í úrvalsliðinu.
Hægri vængur: Lamine Yamal (Spánn) - Undrabarn Barcelona hafði nokkuð hægt um sig í fyrri hálfleik en fór svo með himinskautum í seinni hálfleik og lagði upp mark. Leikgleðin skein af honum.
Vinstri vængur: Nico Williams (Spánn) - Leikmaður mótsins til þessa. Framúrskarandi gegn Georgíumönnum sem réðu engan veginn við hann. Mark, stoðsending og fullkomin sendingatölfræði.
Sóknarmaður: Donyell Malen (Holland) - Þessi sóknarmaður Dortmund kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Hollendinga gegn Rúmenum.
Athugasemdir