Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   lau 31. ágúst 2024 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Osimhen ekki inni í myndinni hjá Napoli og missir númerið sitt
Mynd: EPA
Victor Osimhen verður ekki hluti af leikmannahópi Napoli í vetur, Romelu Lukaku tekur við treyju númer níu og Osimhen fær ekki nýtt númer.

Osimhen var orðaður við Al Ahli í Sádi-Arabíu síðustu daga, en félagið í Sádi ákvað frekar að taka Ivan Toney. Slúðrið er á þá leið að Napoli hafi hækkað verðmiðann á Osimhen á síðustu stundu því hafi ekkert orðið af kaupum Al Ahli á nígeríska framherjanum.

Chelsea hafði áhuga á Osimhen en vildi ekki samþykkja launakröfur hans sem eru himinháar.

Osimhen er á risalaunum hjá Napoli og félagið vill losna við hann. Greint var frá því að hann gæti farið til annars félags í Sádi-Arabíu en glugginn þar er enn opinn.

Fabrizio Romano greinir þá frá því að Mario Rui sé einnig úti í kuldanum hjá Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner