Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   lau 31. ágúst 2024 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Leipzig batt enda á langa taplausa hrinu Leverkusen
Lois Openda kláraði Leverkusen með tveimur mörkum í síðari hálfleik
Lois Openda kláraði Leverkusen með tveimur mörkum í síðari hálfleik
Mynd: EPA
Bayer 2 - 3 RB Leipzig
1-0 Jeremie Frimpong ('39 )
2-0 Alex Grimaldo ('45 )
2-1 Kevin Kampl ('45 )
2-2 Lois Openda ('57 )
2-3 Lois Openda ('80 )

Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen töpuðu óvænt fyrir RB Leipzig, 3-2, á heimavelli sínum í annarri umferð deildarinnar í dag.

Leverkusen vann fyrsta leik tímabilsins með sigurmarki í uppbótartíma gegn Borussia Mönchengladbach en liðið hefur ekki alveg verið nógu sannfærandi í byrjun leiktíðar.

Vissulega fór þetta vel af stað í dag. Leverkusen var með öll völd á leiknum og að skapa sér hættuleg færi. Á síðustu mínútum fyrri hálfleiks skoruðu vængbakverðirnir Jeremie Frimpong og Alex Grimaldo fyrir Leverkusen en Kevin Kampl náði að minnka muninn rétt áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleiknum náðu gestirnir í Leipzig að bíta frá sér. Belgíski sóknarmaðurinn Lois Openda jafnaði á 57. mínútu áður en hann gerði sigurmarkið tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma og þar við sat.

Leverkusen fór taplaust í gegnum síðasta tímabil og hafði ekki tapað í 35 deildarleikjum í röð áður en það tapaði fyrir Leipzig í kvöld.

Leipzig er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en Leverkusen með þrjú stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 3 3 0 0 11 3 +8 9
2 Dortmund 3 2 1 0 6 2 +4 7
3 RB Leipzig 3 2 1 0 4 2 +2 7
4 Heidenheim 3 2 0 1 8 4 +4 6
5 Leverkusen 3 2 0 1 9 6 +3 6
6 Eintracht Frankfurt 3 2 0 1 5 4 +1 6
7 Freiburg 3 2 0 1 5 4 +1 6
8 Union Berlin 3 1 2 0 2 1 +1 5
9 Stuttgart 3 1 1 1 7 7 0 4
10 Wolfsburg 3 1 0 2 5 5 0 3
11 Gladbach 3 1 0 2 5 6 -1 3
12 Hoffenheim 3 1 0 2 5 9 -4 3
13 Mainz 2 0 2 0 4 4 0 2
14 Werder 2 0 2 0 2 2 0 2
15 Augsburg 2 0 1 1 2 6 -4 1
16 St. Pauli 2 0 0 2 0 3 -3 0
17 Bochum 3 0 0 3 1 5 -4 0
18 Holstein Kiel 3 0 0 3 3 11 -8 0
Athugasemdir
banner
banner