Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 15:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alexander-Arnold kyssti myndavélina en markið dæmt af
Mynd: Getty Images
Stórleikur Manchester United og Liverpool hefst af miklum krafti en Trent Alexander-Arnold hélt að hann hafi komið Liverpool yfir snemma leiks.

Hann átti skot sem fór í Diogo Dalot en hann stóð inn í markinu og markið því dæmt gilt.

Sóknin var skoðuð í VAR og niðurstaðan var sú að Mohamed Salah var rangstæður í aðdragandanum. Luis Diaz átti sendingu inn á teiginn og Salah snerti boltann áður en hann barst til Alexander-Arnold sem átti fast skot í markið.

Alexander-Arnold fagnaði markinu að innlifun en fagnið minnti á Steven Gerrard en hann kyssti myndavélina á sínum tíma þegar hann skoraði gegn Man Utd.


Athugasemdir
banner
banner