Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 13:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Man Utd og Liverpool: Óbreytt hjá Liverpool - De Ligt byrjar
Mynd: Getty Images

Það er risaleikur framundan í ensku úrvalsdeildinni þar sem Manchester United fær Liverpool í heimsókn.


Það eru þrjár breytingar á liði Manchester United sem tapaði gegn Brighton í síðustu umferð. Matthijs de Ligt byrjar sinn fyrsta leik eftir komuna frá Bayern í sumar. Þá koma Alejandro Garnacho og Joshua Zirkzee inn í liðið.

Mason Mount er á meiðslalistanum, Harry Maguire og Amad Diallo setjast á bekkinn.

Arne Slot, Stjóri Liverpool, stillir upp óbreyttu liði frá sigri liðsins gegn Brentford. Federico Chiesa er ekki í leikmannahópi liðsins eftir að hafa komið frá Juventus á dögunum.

Man Utd: Onana, Mazraoui, De Ligt, Martinez, Fernandes, Rashford, Zirkzee, Garnacho, Casemiro, Dalot, Mainoo.

Varamenn: Bayindir, Heaton, Maguire, Eriksen, Diallo, Antony, Evans, Wheatley, Collyer.

Liverpool: Alisson, Van Dijk, Konate, Diaz, Szoboszlai, Mac Allister, Salah, Jota, Robertson, Gravenberch, Alexander-Arnold.

Varamenn: Kelleher, Gomez, Endo, Nunez, Gakpo, Elliott, Tsimikas, Quansah, Bradley.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner