Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Dagur Dan lagði upp í sigri Orlando - Kominn með fimm stoðsendingar á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Dagur Dan Þórhallsson lagði upp fimmta mark sitt í MLS-deildinni á tímabilinu er Orlando City vann Nashville, 3-0, í nótt.

Lokaspretturinn í MLS-deildinni er hafinn og er Orlando að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að komast í umspilið.

Dagur er að eiga sitt besta tímabil með Orlando til þessa en hann lagði upp annað mark liðsins gegn Nashville í nótt. Það var fimmta stoðsending hans í deildinni en þar að auki hefur hann gert tvö mörk.

Orlando er í 7. sæti Austur-deildarinnar með 37 stig en efstu sjö liðin fara beint í 16-liða úrslit á meðan sæti 8. til 9. fara í umspil.


Athugasemdir
banner
banner
banner