Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. september 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Haaland getur bætt met Ronaldo
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland, leikmaður Manchester City, gæti bætt eftirsóknarvert met portúgalska leikmannsins Cristiano Ronaldo á næstu dögum.

Haaland skoraði þrennu annan leikinn í röð með Man City er liðið lagði West Ham að velli, 3-1.

Norðmaðurinn hefur nú skorað 97 mörk í 102 leikjum með Man City í öllum keppnum.

Hann gæti orðið sá fljótasti í sögunni til að skora 100 mörk, en Ronaldo á metið.

Ronaldo skoraði 100. mark sitt í 105. leik sínum með Real Madrid, en Haaland fær tvo leiki til að bæta metið.

Man City mætir næst Brentford heima áður en það spilar við Watford, en sá leikur er einnig á heimavelli.


Athugasemdir
banner
banner
banner