Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. september 2024 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Hermoso á leið til Roma - Hummels gæti líka komið
Mario Hermoso er á leið til Roma
Mario Hermoso er á leið til Roma
Mynd: EPA
Ítalska félagið Roma er í viðræðum við miðverðina Mario Hermoso og Mats Hummels en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio.

Hermoso og Hummels eru báðir án félags og getur Roma því skráð báða í hópinn.

Hermoso er 29 ára gamall og var síðast á mála hjá Atlético Madríd, en hann yfirgaf félagið í sumar.

Spánverjinn hefur tekið ákvörðun um að ganga í raðir Roma, en hann hafnaði því að fara til Galatasaray. Hann mun skrifa undir þriggja ára samning hjá ítalska félaginu.

Hummels er 35 ára gamall Þjóðverji sem fór frá Borussia Dortmund þegar samningur hans rann út í sumar. Í heildina eyddi hann tólf árum hjá Dortmund og er talinn einn af bestu varnarmönnum heims síðasta áratuginn.

Roma er í viðræðum við Hummels en hann hefur einnig verið orðaður við Real Sociedad og félög í Tyrklandi.

Chris Smalling er á förum en hann mun semja í Sádi-Arabíu á næsta sólarhringnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner