Í dag fer fram 21. umferð Bestu deildar karla en þetta er næst síðasta umferðin áður en deildinni verður skipt í tvo hluta.
Vestri og Fylkir verða bæði í fallriðlinum en þau eru bæði að reyna að koma sér í sem besta stöðu áður en lokaspretturinn fer af stað.
Fylkir er á botninum með 16 stig en Vestri í 10. sæti með 17 stig. Leikurinn fer fram á Kerecis-vellinum á Ísafirði og hefst klukkan 14:00.
Klukkan 16:15 fer fram leikur KA og Breiðabliks. Blikar eru á toppnum með 43 stig á meðan KA er í 7. sæti með 27 stig. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið, en Blikar eru í harðri titilbaráttu við Víkinga á meðan KA er í baráttu um að komast í meistarariðilinn.
FH og Stjarnan mætast klukkan 17:00 í Kaplakrika. FH-ingar geta gulltryggt sæti sitt í meistarariðilinn en Stjarnan er eins og KA, í baráttu um að komast í efri hlutann. Á sama tíma mætast KR og ÍA á KR-vellinum. Skagamenn geta eins og FH tryggt sæti sitt í efri hlutanum en KR á ekki möguleika að komast þangað.
HK og Fram eigast við klukkan 19:15. Það er einnig mikið í húfi fyrir Fram sem er í baráttu við KA og Stjörnuna um laust sæti í efri hlutanum. HK er í næst neðsta sæti með 17 stig og mun ekki komast í meistarariðilinn.
Umferðinni lýkur með leik Víkings og Vals á Víkingsvellinum. Víkingar eru í öðru sæti með 40 stig en Valur í 3. sæti með 35 stig.
Í Bestu deild kvenna mætast Tindastóll og Keflavík í fallriðli deildarinnar. Tindastóll getur komið sér í góða stöðu með sigri, en tap myndi opna fallbaráttuna upp á gátt.
Leikir dagsins:
Besta-deild karla
14:00 Vestri-Fylkir (Kerecisvöllurinn)
16:15 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
17:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
17:00 KR-ÍA (Meistaravellir)
19:15 HK-Fram (Kórinn)
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
16:00 Tindastóll-Keflavík (Sauðárkróksvöllur)
2. deild karla
14:00 Víkingur Ó.-KFG (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 KFA-Ægir (Fjarðabyggðarhöllin)
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 21 | 14 | 4 | 3 | 50 - 23 | +27 | 46 |
2. Breiðablik | 21 | 14 | 4 | 3 | 48 - 25 | +23 | 46 |
3. Valur | 21 | 10 | 5 | 6 | 49 - 32 | +17 | 35 |
4. FH | 21 | 9 | 5 | 7 | 36 - 35 | +1 | 32 |
5. ÍA | 21 | 9 | 4 | 8 | 40 - 31 | +9 | 31 |
6. Stjarnan | 21 | 9 | 4 | 8 | 39 - 35 | +4 | 31 |
7. KA | 21 | 7 | 6 | 8 | 32 - 37 | -5 | 27 |
8. Fram | 21 | 7 | 5 | 9 | 28 - 29 | -1 | 26 |
9. KR | 21 | 5 | 6 | 10 | 34 - 42 | -8 | 21 |
10. HK | 21 | 6 | 2 | 13 | 23 - 51 | -28 | 20 |
11. Vestri | 21 | 4 | 6 | 11 | 22 - 42 | -20 | 18 |
12. Fylkir | 21 | 4 | 5 | 12 | 26 - 45 | -19 | 17 |
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Stjarnan | 21 | 7 | 4 | 10 | 29 - 41 | -12 | 25 |
2. Tindastóll | 21 | 5 | 4 | 12 | 26 - 44 | -18 | 19 |
3. Keflavík | 21 | 4 | 2 | 15 | 25 - 43 | -18 | 14 |
4. Fylkir | 21 | 3 | 4 | 14 | 20 - 42 | -22 | 13 |
Athugasemdir