Það er jafnt í leik Chelsea og Crystal Palace þegar um stundafjórðungur er til loka venjulegs leiktíma.
Chelsea var meeð forystuna í hálfleik en það var Nicolas Jackson sem skoraði en hann er sagður vera að skrifa undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2033.
Hann skoraði á opið markið eftir sendingu frá Colee Palmer sem er að hefja tímabilið af miklum krafti.
Crystal Palace jafnaði metin af miklu harðfylgi snemma í síðari hálfleik en þar var Eberechi Eze að verki. Palace átti nokkrar tilraunir að marki áður en boltinn barst til Eze sem skoraði með laglegu skoti rétt fyrir utan vítateiginn.
Athugasemdir