Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2024 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal hafnar tilboði í Trossard
Leandro Trossard.
Leandro Trossard.
Mynd: EPA
Arsenal ætlar sér ekki að selja kantmanninn Lenadro Trossard en Lundúnafélagið hafnaði tilboði frá Sádi-Arabíu í hann.

Al Ittihad gerði tilboð í Trossard upp á 25 milljónir punda en Arsenal hefur engan áhuga á selja belgíska landsliðsmanninn.

Félagaskiptaglugginn á Englandi lokaði síðasta föstudagskvöld en hann er enn opinn í Sádi-Arabíu. Hann lokar þar í kvöld.

Arsenal getur ekki fengið leikmann inn í staðinn fyrir Trossard fyrr en í janúar og ætlar félagið því ekki að selja hann núna.

Trossard var keyptur til Arsenal frá Brighton í janúar 2023 fyrir 21 milljón punda og hefur hann reynst öflugur eftir félagaskiptin. Hefur hann verið sterkur í því að koma inn af bekknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner