Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 13:09
Sævar Þór Sveinsson
Byrjunarlið Vestra og Fylkis: Báðir þjálfarar gera eina breytingu á sínum liðum
Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarlið Fylkis.
Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarlið Fylkis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heil umferð í Bestu deild karla fer fram í dag en fyrsti leikur dagsins er viðureign Vestra og Fylkis á Kerecisvellinum.


Lestu um leikinn: Vestri 0 -  0 Fylkir

Það er sannkallaður sex stiga botnbaráttuslagur sem fer fram á Ísafirði í dag.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn Val í síðustu umferð. Jeppe Gertsen kemur inn í byrjunarliðið fyrir Gustav Kjeldsen en hann er í leikbanni eftir að hafa litið rauða spjaldið í síðasta leik.

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn FH í síðustu umferð. Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Þórodds Víkingssonar sem tekur sér sæti á bekknum.


Byrjunarlið Vestri:
30. William Eskelinen (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
4. Fatai Gbadamosi
11. Benedikt V. Warén
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
17. Gunnar Jónas Hauksson
19. Pétur Bjarnason
20. Jeppe Gertsen
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Silas Songani
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Byrjunarlið Fylkir:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Segatta
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Matthias Præst
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
16. Emil Ásmundsson
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
24. Sigurbergur Áki Jörundsson
27. Arnór Breki Ásþórsson
Athugasemdir
banner