Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 17:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Sannfærandi sigur Liverpool á Old Trafford
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Manchester Utd 0 - 3 Liverpool
0-1 Luis Diaz ('35 )
0-2 Luis Diaz ('42 )
0-3 Mohamed Salah ('56 )


Það var mikil eftirvænting eftir leik Manchester United og Liverpool á Old Trafford. Mohamed Salah og Luis Diaz fóru ansi illa með Man Utd í leiknum.

Trent Alexander-Arnold hélt að hann hafi komið Liverpool yfir snemma leiks þegar hann kom boltanum yfir línuna en markið var dæmt af þar sem Salah var rangstæður í aðdragandanum.

Það var ekki mikið um marktilraunir í upphafi leiks en eftir rúmlega hálftíma leik skallaði Diaz boltann í netið eftir fyrigjöf Salah og í þetta sinn stóð markið og Liverpool komið með forystuna.

Undir lok fyrri hálfleiks vann Diaz boltann auðveldlega af Casemiro sem átti erfitt uppdráttar í leiknum og var tekinn af velli í hálfleik. Diaz sendi boltann á Salah og fékk hann síðan aftur og skoraði. 2-0 fyrir Liverpool í hálfleik.

Snemma í seinni hálfleik unnu Liverpool menn boltann á miðjum vellinum og brunuðu upp í skyndisókn. Dominik Szobozlai lagði boltann á Salah sem skoraði að miklu öryggi og innsiglaði sigur liðsins.

Mjög sannfærandi sigur hjá Liverpool. Arne Slot getur ekki beðið um meira í fyrstu leikjum sínum sem stjóri liðsins. Man Utd hins vegar aðeins með þrjú stig eftir þrjár umferðir.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 4 4 0 0 11 3 +8 12
2 Liverpool 4 3 0 1 7 1 +6 9
3 Aston Villa 4 3 0 1 7 6 +1 9
4 Brighton 4 2 2 0 6 2 +4 8
5 Nott. Forest 4 2 2 0 4 2 +2 8
6 Arsenal 3 2 1 0 5 1 +4 7
7 Chelsea 4 2 1 1 8 5 +3 7
8 Newcastle 3 2 1 0 4 2 +2 7
9 Brentford 4 2 0 2 6 6 0 6
10 Man Utd 4 2 0 2 5 5 0 6
11 Bournemouth 4 1 2 1 5 5 0 5
12 Fulham 4 1 2 1 4 4 0 5
13 Tottenham 3 1 1 1 6 3 +3 4
14 West Ham 4 1 1 2 5 6 -1 4
15 Leicester 4 0 2 2 5 7 -2 2
16 Crystal Palace 4 0 2 2 4 7 -3 2
17 Ipswich Town 4 0 2 2 2 7 -5 2
18 Wolves 3 0 1 2 3 9 -6 1
19 Southampton 4 0 0 4 1 8 -7 0
20 Everton 4 0 0 4 4 13 -9 0
Athugasemdir
banner
banner
banner